Sælt veri fólkið, líkt og alþjóð veit stóðum við í ströngu síðast liðna helgi en þá kviknaði í þvottavélarýminu aftur í skut hjá okkur. Nokkrir vaskir áhafnarmeðlimir náðu að ráða niður logum eldsins og því fór betur en á horfði. Seinna meir munum við koma með nánari frásögn af þessu frækna björgunar afreki en núna stöndum við í ströngu við að þrífa og koma skipinu aftur á miðin. Stefnan er að reykræsta skipið rækilega og þrífa brunasvæðið og sennilega að loka því og halda svo áfram síldarveiðum. En líkt og áður hefur komið fram mun þetta verða síðasta síldarvertíð þessa söguríka skips. Hér til hliðar er kominn nýr liður sem heitir "í dag fiskum við" sem hefur að geyma fróðleik um þá fisktegund sem við erum að veiða hverju sinni.
kv. áhöfnin af Eldeynni
Posted at 02:18 pm by Vilhelmh
Af happaskipinu er það helst að frétta að það er búið að landa tvisvar. 200t í fyrra skiptið og 500t í seinna skiptið en við þurftum að kasta 9 sinnum fyrir 500 tonnin
sem að telst frekar mikið. Það er því svona leiðinda stand á þessu. Meistari Sigurður fer nú sem Kapteinn með skipið á nót, óskum honum velfarnaðar og mikillar gæfu með það. Annars er nú viku bræla framundan og því ekki mikið útlit. Ívar Chen er kominn um borð ferskur sem ljón og því mikil kátína um borð. Lítið heyrst af "nýja" málinu síðustu klukkustundir. Hér til hliðar hefur vefstjóri sett mynd sem að er af stýrimönnum beitis frá því þeir gengu sína skólagöngu, Svona til að brjóta þetta aðeins upp. Vil svo benda á nýuppfærða tengla hér til hliðar, og einnig vekja athygli á því að til stendur að vera með fiskafræði horn hér til hliðar svona í framtíðinni og þá aðalega með hliðsjón af því hvaða veiðiskap skipið er á. Við viljum svo óska Íslensku þjóðinni til hamingju með að hvalveiðar megi hefjast. Þetta mun vissulega koma til með að hafa áhrif á okkar atvinnu í framtíðinni og erum við því ákaflega ánægðir með þetta allt saman. Nú svo er hvalkjetið auðvitað svo gott í munn líka!
Spakmæli vikunnar á svo kapteinninn sjálfur;
"Hvað er þetta, þetta er nú bara hreinn sjór!" Sigurbergur Hauksson
Posted at 03:04 am by Vilhelmh
Daginn hér,
Þá er aflaskipið komið á miðin enn á ný. Margt í deiglunni þessa dagana. Mikið pælt hvort að Guðmundur Ólafur sé nýji Beitir, eða hvort að það verði bara Súlan. Eitt er þó víst að við Beitismenn tökum öllu með opnu hugarfari, reynum ávallt að taka lífinu með jákvæðu geðhaldi. Af miðunum er lítið að frétta; Komum út í fyrri nótt en gerðum ekkert. Köstuðum svo tvisvar síðustu nótt og afli samtals 30 tonn. Það er mál manna að hún sé ekki komin í almennilegt stand ennþá, t.d. er sjávarhitinn 3 gráðum hærri en á sama tíma í fyrra. Það er því bara að bíða og sjá. Vil benda á að Beitis vídjóið er í fullum gangi hér til hliðar. Og verið að er vinna í að safna bloggsíðum hinna ýmsu skipa utan af landi og setja í tenglana hér til hliðar. Endum þessa færslu á orðum eins áhafnarmeðlims.
"Þetta kemur allt saman með nýja Beiti" Óli Gjöf 1994
Posted at 03:17 am by Vilhelmh